What you gon' do with all that junk, All that junk inside your trunk...
Jæja kominn tími á nýtt blogg um ástir og örlög Evu Everlast
Var að koma heim frá Köben í gær eftir ææææðislega Gullglyðruhelgi! (ég ætti kannski að takmarka bloggfærslurnar við utanlandsferðir mínar. Það virðist vera einu skiptin sem ég hef eitthvað markvert í fréttum!) Forsagan er sumsé sú að Ég, Heidi og Sigrún erum staddar sem aldrei fyrr á djamminu eikkutíman í sumar. Þetta var svona loka djammið okkar áður en Sigrún flutti til Árósa. (Þuríður hafði reyndar verið með okkur fyrr um kvöldið en var á umræddum tímapunkti fjarri góðu gamni.) Við förum eitthvað að tala um hvað það væri sorglegt að við hittumst ekkert í svona langan tíma og við þyrftum eiginlega bara að skipuleggja ferð til Köben. Þegar umræðan var komin á mjööög sentimental stig (eftir örfá hvítvínsglös) gaf ég Heidi fullt umboð mitt til að skipuleggja þessa ferð. Næsta sem ég veit er að nokkrum vikum síðar fáum við Þuríður sms frá heidi með reikningsnúmerinu hennar og beiðni um að leggja inná hana vissa upphæð. Ég nottla var búin að steingleyma þessu og hringi í offrosri í Heidi sem tilkynnir mér það að hún sé bara búin að kaupa miða til "Keben" og bóka hótel og kaupa miða á tónleika! alveg einsog ég sagði henni að gera!!! Tja, hvað gat ég gert annað en að kyngja mínum eigin orðum og borga þegjandi og hljóðalaust?!? Eitthverjum datt svo í hug að plata Sigrúnu og segja ekki frá því að við Þuríður værum að koma heldur bara Heidi. Ég skil ekki alveg hvernig okkur tókst að halda kjafti um þau áform í heila 2 mánuði en það tókst á eitthvern undraverðan hátt! Á síðastliðin fimmtudagsmorgun vorum við klárlega hressustu manneskjurnar í Leifstöð, mættar kl 5! Ég og Þuríður vorum líka hressustu manneskjurnar í flugvélinni og skáluðum í Gammeldansk og tókum myndir af Heidi sofandi. Sigrún varð nottla mega-hissa að sjá okkur allar og helgin var bara ææææðisleg í alla staði. Verluðum helling (ég er ekki búin að þora að kíkja á heimabankann minn síðan ég kom heim) Fórum í Tívolí, drukkum kokteila, borðuðum óóóógeðslega mikið af mat og hristum sætu bossana okkar. Toppur og einiglegur tilgangur ferðarinnar voru svo Gwen Stefani tónleikarnir á sunnudaginn.... Men... Konan er nottla fáááááránlega HEEEIT!!!!
Við komum svo heim í gær, sligaðar af yfirvofandi Visa reikning og yfirvigt!
Þegar ég steig á vigtina komst ég líka að því að ég hafði komið með kassa af bjór, nokkur kíló af roastbeef og 10l af mæjónesi til baka á rassgatinu á mér! ughhh... nú er það bara gymið og hrökkbrauð fram að jólum. Ætla að líma mynd af Gwen á ísskápinn!
Jæja, þar sem ég setti skólan á hold í heila viku neyðist ég víst tið að fara að reyna að troða eitthverju inní hausinn á mér.
Set nokkrar myndir inn sem ég ætla að stela af síðunni hennar Þuríðar
knús í bili
16. október 2007 klukkan 18:27
Eva M. Kristjánsdóttir 8 athugasemdir
23september
Went to fast, way to soon, I feel disgusted and you should too...
Vegna gríðarlegs félagslegs þrýstings hef ég ákveðið að skella inn einni færslu eða svo á þessum sunnudagseftirmiðdegi! Ætlunin var að blogga þegar ég væri búin að fá myndirnar frá NY og sumrinu, en ég hef gefið upp alla von á að fá þær myndir í hendurnar á næstunni. Ég verð því að reyna að lýsa atburðunum með orðunum einum.
New York er nottla ææææðisleg borg. Vorum á geggjuðu hóteli í Soho, geðveikt chillað og næs. Svo var bara tekinn pakkinn á þetta. Borðuðum fullt af góðum mat, fórum á leiksýningu, stand-up, lentum í skrúðgöngu, sólbað í Central Park, fórum í pílagrímsferð í Saks 5th avenue. Það gerðist reyndar eitthvað skrýtið í Saks, ég held að ég hafi fengið spennufall þegar ég labbaði þar inn. Ég verslaði ekkert nema 2 skópör (geeeggjað flotta reyndar. Christian Laboutin og Louis Vuitton) á meðan Kalli verslaði fullt. Ég tók reyndar meðvitaða ákvörðun um að fara ekki lengra inn í skódeildina eftir að ég var búin að fara í fyrstu 2 búðirnar og kaupa eina skó í báðum. Nú veit ég hvernig himnaríki lítur út!
Eftir að ég kom heim fór ég beint í skólann. Það er alveg næs sko. Bý með 3 strákum og 1 stelpu, svo er ein í viðbót sem á víst heima með okkur en enginn hefur séð hana... kannski er hún vampýra. Sambúðin gengur vel ennþá. Við "krakkarnir" erum vakin af "pabba" ef við sofum yfir okkur og dregin á lappir. Ég fíla skólann líka mjög vel, þar að segja allt nema eitt fag. Satanískt fag sem er kallað "upplýsingatækni og stjórnun upplýsingakerfa"... I know, það er meirasegja erfitt að segja það. Til að varpa frekara ljósi á hatur mitt á þessum tíma ætla ég að setja upp formúlu: UPST1=[Excel tími hjá Baldri Sveins á mánudagsmorgni kl 8:10] * 10^8 / 0,02 Kennarinn er einsog jólasveinninn nema hann er illur. Hann brýtur niður sjálfstraust manns með því einu að líta í áttina til manns. Ofan á alltsaman held ég að hann borði lítil börn. Ég kem nú yfirleitt í bæinn um helgar. Það er ekkert alltof mikið fjör á þessum stað, ólíkt því sem haldið er fram. Ég bjóst við stóðlífi og endalausri áfengisneyslu en keypti greinilega köttinn í sekknum. Fátt um myndarlega limi.
Hitti Gullglyðrurnar mínus Sigrúnu í gær. Það var æðislegt. Fórum í löns á Nordica og fengum updeit á stöðu mála innan samtakanna. Við erum alltaf jafn fabulous, það breytist ekkert.
Jæja, afi og amma komin í kjötsúpu. Sólong í bili
23. september 2007 klukkan 17:16
Eva M. Kristjánsdóttir 6 athugasemdir
27ágúst
I want to wake up in the city that never sleeps...
Í ljósi þess að ég hef ekki bloggað síðan rétt uppúr seinustu ísöld og heilu sumri veður ekki troðið inní eina bloggfærslu (nema hún yrði í Castro stíl) ætla ég að stikla á stóru.
Jónsmessa var: frekar léleg þetta árið. Of mikið af Húsvíkingum (vil taka það fram að 1 Húsvíkingur er of mikið) Of mikið af fullum unglingum. Fékk samt heimsókn frá góðu fólki, drakk Champagne, varð fyrir árás rafmagnsgirðingar (thanx alot Nína), fór í lopapeysu, spilaði og söng...
Helgi no1. í Reykjavík var: Blaut! Meira Champagne, nýstraujaðir 500 kallar og súlur, að ógleymdu... ritskoðað...
Menningaferð Evu og Þuríðar til Egilsstaða var: Hrein snilld! Fjárfesti í forláta mixer í kaupfélagi Austfirðinga. Ætlunin var að baða okkur í "fresh margs"... en það er augljóslega ekki mikil kokteilamenning fyrir austan, því það var hvorki til Triple Sec né Cointreau í ríkinu! Við enduðum því með að sötra Margarítur með Grand Mariner í (mis)góðum félagsskap það kvöldið. Já svo keyrðum við uppá Kárahnjúka svona til málamynda. Ekkert spennandi að sjá þar, engir mótmælendur til að keyra niður, engir útþrælkaðir Portúgalir og engar pólskar vændiskonur sjáanlegar. Við keyrðum svekktar heim á leið en funndum Þuríðarstaðardalsá á heimleiðinni. Ég fór í fýlu og endurskírði annan Kárahnjúkinn Evuhnjúk. Landmælingar Íslands hafa nú sett málið fyrir nefnd.
Gullglyðruhelgin var: Faaabulous!!! Hvað annað... Þegar 4 íðilfagrar Gullglyðrur koma saman er ekki von á öðru. Sigrún og Heidi mættu galvaskar og við sýndum sveitungum hvernig alvöru dömur haga sér. Drukkum "fresh margs", naglalökkuðum trommuleikara, funndum upp nýja kokteila, töluðum við nunnuna, hristum blöðrurnar héldum uppi skemmtun fyrir gesti Jarðbaðanna.
Verzlunarmannahelgin var: Yndisleg. Kalli og Matt komu á föstudeginum og við keyrðum austur á Egilsstaði (greinilega staður sumarsins) og hittum Junior og fjölskylduna hans. Drukkum flösku af Jack á mann og ég reyndi að gelda Kalla og beitti hann frekara líkamlegu ofbeldi. Ég kenni vini mínum mr. Daniel um það. Á laugardeginum komu Nína og Geiri og við fórum á sveitaball í léttsteypunni... sveitt!
Menningarnótt var: Sérlega ómenningaleg... Ég og Þuríður komumst að því að við erum að verða gamlar og rekum ósjaldan upp kellingagól því til staðfestingar. Þetta er svona svipað og þegar karlmenn fara að gyrða bolinn ofaní buxurnar sínar og troða servéttunni í hálsmálið.
Það gerðist nú örugglega eitthvað fleira markvert í sumar, en það er líklega grafið í djúpar sprungur í heilann á mér eða er ekki prenthæft. Þeim sem vilja grennslast frekar fyrir um ævintýri sumarsins er bent á að hafa samband við ritara minn á skrifstofutíma.
Framundan er svo...
New York, New York... I'll keep u informed
until next time tata
27. ágúst 2007 klukkan 15:04
Eva M. Kristjánsdóttir 5 athugasemdir
11júní
There's no time to discriminate, Hate every motherfucker that's in your way...
Það er helst fregna héðan úr Suður-Þingeyjasýslu að snjóa hefur leyst og sumarið gengið í garð.
Aðrar og ekki síður stórkostlegar fréttir eru þær að ég keypti mér kort í ræktina! Undur og stórmerki! Er reyndar bara búin að fara 1 sinni sökum annríkis í vinunni en stefni að því að vera komin í form fyrir skólann í haust. Ég hjólaði meira að segja í ræktina og heim aftur um daginn, gleypti 12 flugur, 2 flugu í hægra augað á mér og 1 inní eyrað á mér. Smá prótein er bara hressandi! Gerði 300 magaæfingar, hljóp í hálftíma og reyndi að bonda við tröppuvélina... tókst ekki alveg nógu vel. Skil ekki alveg hvernig hún virkar. Þetta virðist vera svo auðvelt þegar maður horfir á aðra gera þetta, en ég lúkkaði klárlega ekki alveg nógu vel við þessa iðju. Endaði alltaf með því að festast uppi sama hvað ég reyndi að hreyfa fæturna hratt... sem betur fer var enginn annar viðstaddur til að sjá þessi tilþrif.
Sit núna og passa lobbýið, les nýjasta slúðrið og skoða myndir af fallega fólkinu. Verð að fá að tjá mig aðeins um það: Paris Hilton.... hahaha.... gott á þig Victoria Beckham... Geggjað outfitt! Ég verð að kaupa mér grifflur
Jæja... hef ekki meira að segja í bili sælar
11. júní 2007 klukkan 12:43
Eva M. Kristjánsdóttir 3 athugasemdir
24maí
In between the cover of another perfect wonder, and its all white as snow...
Ég og Þuríður erum búnar að sitja hér í lobbyinu í allan dag, húðlatar, hanga á myspace og horfa út um gluggan. Það er skemmst frá því að segja að það er snjókoma í Mývatnssveit! Ég vil benda á að það er 24. maí!!! Hér erum við einar úti í óbyggðum, fjarri allri siðmenningu snjóaðar inni á hóteli. Þetta er samt mjög kósí. Fyrir utan okkur Þuríði eru 2 kokkar og 2 Jónasar mættir á svæðið. Þegar við erum ekki að vinna styttum við okkur stundir með glasalyftingum á milli þess sem við horfum á Grey's (sem er btw uppgvötun ársins af minni hálfu) æji, ég er fáránlega andlaus eitthvað... ætla að reyna að fara að gera eitthvað af viti
sælar
24. maí 2007 klukkan 15:08
Eva M. Kristjánsdóttir 2 athugasemdir
16maí
Country roads, take me home to the place I belong...
1 dagur eftir á Oliver :) Gleði gleði... Þá er tveggja ára þrautargöngu minni á þessum annars ágæta stað lokið. Mér lýst geðveikt vel á strákinn sem tekur við af mér, hann á eftir að rúlla þessu upp. Ég hef bara mestar áhyggjur af því að enginn eigi eftir að sakna mín :(
Svo brunum við Þuríður í sveitina á laugardaginn. Planið er einsog venjulega þegar við keyrum norður: Kaupa fullt af snakki (beikonbugðum og voga-ídýfu), Pepsi max og nammi. Stoppa þrisvar á leiðinni, Borgarnesi til að pissa og kaupa meira nammi, skyldustopp í Staðarskála, Esso skálinn á Blönduósi þar sem við rifjum upp þegar Alma fékk mat í körfu. Brunum svo í sveitina þar sem bíður eftir okkur Gin&Tonic :)))
Á meðan ég man... Reykingar eru hallærislegar og SVO last season! Ég hef ákveðið að hætta þeirri viðurstyggð og taka upp heilbrigðara líferni! Það gengur ágætlega so far. Það eru 15 klukkutímar síðan ég reykti síðast og mér líður svona líka helvíti vel! Þuríður átti 5 ára reykinga-afmæli í gær. Þann 15. maí 2002 sátum við fyrir aftan Gamla Bæinn og ég var í sígópásu. Þuríður tilkynnti þá viðstöddum að hún ætlaði að reykja í akkúrat eitt ár frá og með fyrrnefndum degi. Upphófst mikill feluleikur í kringum reykingarnar að ónefndum tilþrifunum sem fylgdu þessari iðju. Hún setti upp sérstakan reykingasvip og púaði tilgerðarlega fyrstu vikurnar. Með tímanum náði hún þó að þróa ágætt reykingalúkk og ári síðar var hún búin að ná góðum tökum á listinni að reykja. Það tókst ekki alveg jafn vel að hætta einsog að byrja og þetta eins árs tímabil hefur framlengst um örfá ár. Nú skora ég á Þuríði vinkonu mína að ganga mér til liðs og drepa í sígarettunni!
Ætlaði að blogga um kosningarnar en nenni því ekki. Hef líka frekar lítið um þær að segja nema að ég er ágætlega sátt við útkomuna. Björn Bjarnason hefði þó mátt verða fyrir flutningabíl á leiðinni á kjörstað.
sæl að sinni, blogga líklega næst úr sveitinni
16. maí 2007 klukkan 17:26
Eva M. Kristjánsdóttir 3 athugasemdir
26apríl
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga, sæta langa sumardaga...
Núna er ég að bíða eftir vorinu. Það kom um daginn, svo fór það. Snjóaði, fraus, rigndi, élaði, svo kom aftur vor. Ég veit ekki alveg hvað er núna. Held að það hafi verið haust í morgun, uppúr hádegi var svo komið vor. Núna er rigning og myrkur, ætli það sé þá ekki kominn vetur?!!
Einsog glöggir lesendur hafa ef til vill tekið eftir er liðinn dágóður tími frá því ég bloggaði seinast. Ég hef ekki hugsað mér að reyna afsaka það á nokkurn hátt. Þetta er eintóm leti og ekkert annað. Þrátt fyrir bloggleysi hefur lífið gengið sinn vanagang. Vinna, sofa, djamma, hitta vinina. Fer heim til mín endrum og eins til að foreldrar mínir geti slátrað alikálfinun fyrir týndu dótturina... klikkar aldrei!
Til að gera langa sögu stutta er þetta helst í fréttum: - Keypti mér íbúð - Sótti um í Bifröst næsta haust - Hætti í vinnunni - Verð í Mývatnssveit í sumar - Komin með kæró
... það gæti verið að þetta sé ekki í réttri tíma- eða mikilvægisröð, en þetta er basically það sem hefur drifið á daga mína síðustu vikur og mánuði.
Er að hugsa um að kíkja til Portúgal í sumar til hennar Láru minnar. Planið er að fljúga til Spánar og taka smá road trip til Portúgal og vera þar í eitthvern tíma, fljúga svo heim þaðan.
Miðvikudagur til moldar, mér finnst miðvikudagar ekki skemmtilegir! Aðallega ekki vinnu-miðvikudagar. :( Er í fríi um helgina og er víst búin að lofa að vakna fyrir allar aldir á sunnudaginn og gera Sushi fyrir fermingarveislu litla bróður. Sunnudagar til sælu Plön helgarinnar eru óráðin enn. Stefni að því að vera í rólegri kantinum aldrei þessu vant. Enda óviðeigandi að vera eitthvað tussulegur á fermingardegi bróður síns, er það ekki?!!
Jæja, upp upp mín sál. Ætla að hætta þessari leti, loka þessu pleisi og drífa mig heim í fótabað.
ble í bili, vona að eitthverjir villist enn inná síðuna mína fyrir tilviljun og sjái sér til einskærrar undrunnar að ég hef náð að drita niður örfáum línum sjálfri mér til skemmtunnar.
26. apríl 2007 klukkan 00:33
Eva M. Kristjánsdóttir 5 athugasemdir
07febrúar
They love you when you're on all the covers, when you're not then they love one and other...
Febrúar er glataður mánuður! Það eru allir fátækir, þunglyndir og leiðinlegir. Þar á meðal ég! Nei, annars, bara pínu. Ég er bara búin að vera svo fáránlega löt og framtakslaus eitthvað. Nenni ekki að gera neitt í vinnunni, hangi bara niðri í tölvu og horfi á O.C. Það hjálpar pínu að horfa á fallega fólkið í designer fötunum baða sig í sólskini. Ekkert shallow... nei! Svo er maður bara sofandi endalaust. Piff... ekki sniðugt! Anyways... hætt að röfla, kviss bamm búmm
Þrír frídagar í röð framundan. What to do. Ætli ég borgi ekki hauginn af stöðumælasektum sem flæða út úr hanskahólfinu hjá mér þegar ég opna það til að setja nýja sekt inn. Ég kann án gríns kenntöluna og reikningsnúmerið hjá bílastæðasjóð utanað.
annars er ég með ýmislegt á prjónunum sem ég segi kannski frá seinna þegar meira er komið í ljós... jammjammjamm....
anyways. Ætla að fara að drífa mig í sturtu og koma mér af stað. Dagurinn hjá mér byrjar nefnilega ekki fyrren eftir kl. 18:00
tútilú EVA
07. febrúar 2007 klukkan 16:41
Eva M. Kristjánsdóttir 6 athugasemdir
01febrúar
Climb in the back with your head in the clouds, and you're gone...
Þá er Danmerkurferðin að baki. Þetta var einsog við mátti búast erfið ferð. Hefðum þessvegna bara getað sett upp legg og dælt áfenginu beint inní blóðrásina, það hefði sparað dýrmætan tíma. Nei annars, þetta var mjög gaman og menningarlegt. Verslaði EKKI NEITT... hvað er að ske! Labbaði inní H&M en ljósin voru of björt þannig að ég neyddist til að fara á næsta bar og fá mér bjór. Þá er það bara að byrja að plana næstu utanlandsferð
Hvað er annað búið að vera á döfinni hjá mér.... ekki mikið frekar en venjulega. Var að vinna um helgina, crazy djamm einsog alltaf. Það virðist ekkert minnka þó jóla-visa sé kominn inn um lúguna. Sjálf ætlaði ég að reyna að minnka djammið eftir ferðina ógurlegu, en það virðist ekki vera að ganga neitt rosalega vel. Æj... það er bara í lagi, verð stillt og góð skólastelpa frá og með næsta hausti! =)
Ég gerðist þjóðernisleg og horfði á hanboltann í gær. Maður er svo sportý sjáiði til. Reynar vissi ég ekkert hvað um var að vera en Þuríður stakk uppá að við fengum okkur bjór og horfðum á sveitta stráka. Að sjálfsögðu féllst ég á það. Þegar 5 minútur voru búnar af leiknum vorum við báðar hoppandi í rúminu af æsingi (yfir leiknum, ekki gæjunum) Í endann vorum við orðnar svo taugaveiklaðar að við skiptum yfir á aðra rás til að róa okkur niður. Helvítis Danir! Ég ætla að sniðganga danskar vörur í viku. Þar með talinn Tuborg.
Er í vinnunni núna og ekki búin að gera neitt af viti í allan dag. Það má stundum... ætla að vera duglegri á morgun. Planið fyrir helgina...??? veitiggi, vinna föstudag. Líklega djamma laugardag. Spurning um að skella sér út úr bænum svo maður hætti að gera sig að fífli í miðborginni.
anyways, ætla að fara að skoða klám ble í bili EVA
01. febrúar 2007 klukkan 04:30
Eva M. Kristjánsdóttir 7 athugasemdir
15janúar
Æji ég er svo mikill lúði, ég póstaði óvart færslunni áður en ég var búin að klára hana. Sniðug!
Ítalíuferðin var alger snilld! Reyndar var smá vesen með farangurinn. Fengum engar töskur þegar við komum til Milano, frekar pirruð þar sem ALLT dótið var í þeim, fötin, skíðin og alltsaman. Það reddaðist nú samt. Við leigðum bara græjur fyrstu dagana þannig að við misstum bara 1 dag úr á skíðum. Það sem var hinsvegar verra var að 24. des. voru töskurnar ekki ennþá komnar, þannig að við vorum í skítugum nærbuxum á jólunum! Nei, reyndar versluðum við bara ný föt, en samt pirrandi að vera í eitthverju glötuðu átfitti á aðfangadag! Færið var fínt. Alveg nóg snjór, hefði samt mátt vera aðeins meira. Föttuðum það snemma að trikkið var að mæta fyrstur í brekkurnar á morgnanna áður en allt hitt fólkið vaknaði. Eftir hádegið voru brekkurnar oft orðnar svoldið grafnar og leiðinlegar. Þegar maður kom heim af skíðum var svo farið í bað og gufu, tekinn smá fegurðarblundur og svo bara beint í 6 rétta dinner. Eftir það var maður yfirleitt svo búinn á því að það var bara farið beint í bólið. Kíktum reyndar aðeins út stundum en ekkert djamm samt. Já, spáið í því, ég djamaði bara einusinni allan tímann!!! Ótrúlegt en satt! Ég tímdi bara eiginlega ekkert að vera í ruglinu þarna því þá hefði maður misst úr heilan dag í brekkunum skiljiði...
Svo er bara allt fallið í sama farið, vinna, sofa, djamma... Það er reyndar bara vika í næstu utanlandsferð (",) Stutt ferð til Köben. Það verður eitthvað rugl ef mér skjátlast ekki!
Anyways, ætla að segja þetta gott í bili og fara að blása á mér hárið ble í bili EVA
15. janúar 2007 klukkan 21:40
Eva M. Kristjánsdóttir 4 athugasemdir